kokteilar á krana
 
 
 
 
 
 
Untitled design-7.png

Á KRANA, Í FLÖSKu & Í DÓS

HVAR SEM ER, hvenær sem er

Við bjóðum upp á vín frá bestu vínekrum heims sem og hágæða kokteila tilbúna beint af krana.
Við þjónustum krár, bari, veitingahús, hótel og viðburði.
Hagræðing í rekstri, hraðari þjónusta til viðskiptavina og einfaldari innkaup.

vín og bubblur á krana

Gæða vín og ferskleiki fram á síðasta dropa. VitaBona vín koma í 20L kútum sem gerir þér kleift að bjóða gestum fjölbreytt úrval af víni á krana. Birgðargeymsla og rýrnun er ekki lengur áhyggjuefni, ekkert tap á gæðum eða ferskleika þar sem að loftþéttar umbúðir koma í veg fyrir að súrefni eða ljós hafi áhrif á gæði vínsins.

kokteilar á krana

VitaBona kokteilar koma í 20L kútum. Kokteil uppskriftir eftir verðlauna barþjóna þar sem einungis er notað hágæða hráefni og áfengi frá handverks framleiðendum.

Þeir státa allir af um 10% eða hærra ABV og inniheldur engin auka eða gerviefni og eru 100% ofnæmisfríir.

Sparnaður í aðföngum, engin rýrnun, fljótlegri þjónusta, áreiðanleiki í gæðum sama hver þjónar.

 
 

óáfengir kokteilar

Framúrskarandi óáfengir kokteilar sem verða sífellt vinsælli. Framleiddir úr ferskasta hráefni sem völ er á, Square Root fá bestu ávextina afhenta beint í gosverksmiðjurna og allir drykkir unnir á staðnum, sítrónur og appelsínur ræktaðar af hinum fræga Carmelo Laudani á Sikiley ásamt öðrum sér ræktuðum ávöxtum sérstaklega fyrir óáfengu kokteilana.

kokteilar í dósum

VitaBona kokteilar koma í 200ml dósum. Framleiddir á sama hátt og kranastélin, kokteil uppskriftir eftir verðlauna barþjóna þar sem einungis er notað hágæða hráefni og áfengi frá handverks framleiðendum.

Þeir státa allir af um 8% eða hærra ABV og inniheldur engin auka eða gerviefni og eru 100% ofnæmisfríir.

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Untitled design-6.png